Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 02. desember 2017 18:42
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Gylfi valinn maður leiksins af stuðningsmönnum
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson var valinn maður leiksins af stuðningsmönnum Everton eftir sigur liðsins á Huddersfield í dag.

Gylfi skoraði fyrra mark Everton í upphafi seinni hálfleiks og er þar með kominn með tvö deildarmörk fyrir liðið en eins og flestir muna þá skoraði hann stórkostlegt mark síðustu helgi í tapi gegn Southampton.

Everton fór með sigrinum í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og eru komnir með 18 stig.

Þeir mæta næst Limassol í Evrópudeildinni á fimmtudaginn en næsti deildarleikur er hins vegar af stærri gerðinni, þeir fara þá í heimsókn á Anfield þar sem þeir mæta heimamönnum í Liverpool.




Athugasemdir
banner
banner
banner