Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 02. desember 2017 07:00
Hafliði Breiðfjörð
KSÍ minnir á að bannað sé að nota landsliðsbúninginn í auglýsingar
Icelandair
Fyrirtæki verða að passa sig á að nota ekki landsliðsbúninginn í auglýsingar fyrir Heimsmeistaramótið.
Fyrirtæki verða að passa sig á að nota ekki landsliðsbúninginn í auglýsingar fyrir Heimsmeistaramótið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Auglýsingastofan Pipar/TBWA sendi frá sér fréttatilkynningu í gær fyrir hönd KSÍ þar sem minnt er á að bannað sé að nota landsliðsbúning Íslands í auglýsingar nema með samþykki sambandsins. Pipar/TBWA mun sjá um að fylgjast með þessu en KSÍ og fyrirtækið gerðu með sér samning um vörumerkjavöktun.

„Við gerðum sambærilegan samning fyrir EM 2016 og það gekk vel“, segir Ómar Smárason markaðsstjóri KSÍ í tilkynningunin.

„Það er full þörf á slíkri vöktun. Það er alltaf ákveðin freisting hjá auglýsendum að tengja sig liðinu í markaðsefni, ekki síst þegar vel gengur – og það er eðlilegt. Öll þjóðin fylgist með og allir vilja veg liðsins sem mestan. En um þetta gilda hinsvegar mjög strangar reglur. Merki KSÍ og landsliðsbúningurinn eru skrásett vörumerki og öll notkun myndefnis sem sýnir merkið, búninginn eða leikmenn íklædda honum er með öllu óheimil, nema samstarfsaðilum KSÍ.“

PiparTBWA sinnir vörumerkjavöktun fyrir hönd KSÍ til loka júlí 2018. Í því felst eftirlit með því að vörumerki KSÍ séu ekki misnotuð í markaðslegum tilgangi af óháðum aðilum, meðal annars til að gæta að ímynd KSÍ og íslenskrar knattspyrnu. Birting og notkun á samfélagsmiðlum er þar meðtalin. Öll óréttmæt eða óviðeigandi notkun varðar við lög.

„Það er ósk KSÍ að allir hlutaðeigandi virði þær reglur sem gilda fyrir vörumerki KSÍ sem greint er frá hér framar og lesa má nánar um á vefsíðu KSÍ," segir í tilkynningunni.

„Allar fyrirspurnir varðandi reglur um notkun á vörumerkjum KSÍ, styrkbeiðnir og samstarf við KSÍ má beina til PiparsTBWA í gegnum netfangið [email protected]."
Athugasemdir
banner
banner
banner