lau 02. desember 2017 13:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Dómarinn henti Fabregas í jörðina
Mynd: Getty Images
Það er rétt rúmur klukkutími búinn af leik Chelsea og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.

Staðan er 2-1 fyrir Englandsmeisturum Chelsea, en meistararnir lentu undir í leiknum.

Kevin Friend, dómari, hefur ekki fallið vel í kramið hjá stuðningsmönnum Chelsea fyrir frammistöðu sína á Brúnni í dag.

Stuðningsmenn Chelsea hafa látið vel í sér heyra, en eitt atvik vakti sérstaka athygli á samfélagsmiðlum. Það var þegar Friend ákvað að "tækla" Cesc Fabregas, miðjumann Chelsea.

Friend stoppaði sókn Chelsea í leiðinni og gaf Newcastle tækifæri til að sækja hratt upp völlinn.

Myndband af þessu má sjá með því að smella hér
Athugasemdir
banner
banner
banner