Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 02. desember 2017 16:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Gylfi kom Everton yfir
Fyrsta mark Everton í stjóratíð Stóra Sam
Mynd: Getty Images
Gylfi Sigurðsson er að komast í gang!

Hann er búinn að koma Everton yfir gegn Huddersfield, en leikurinn hefur framan af verið bragðdaufur.

Gylfi skoraði eftir laglegan undirbúning frá Dominic Calvert-Lewin, sem átti hælsendingu inn fyrir vörnina, inn á Gylfa sem var réttur maður á réttum stað, 1-0 fyrir Everton.

Þetta er annað deildarmark Gylfa fyrir Everton en þetta er fjórði deildarleikurinn í röð þar sem hann annað hvort skorar eða leggur upp. Hann lagði upp gegn Crystal Palace, skoraði glæsimark gegn Southampton og lagði upp gegn West Ham.

Athygli vekur líka að þetta er fyrsta mark Everton í stjóratíð Sam Allardyce, en hann tók við liðinu á dögunum.

Smelltu hér til að sjá mark Gylfa.







Athugasemdir
banner
banner
banner