Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 02. desember 2017 21:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Stóri Sam: Fyrra markið róaði okkur niður
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce eða Stóri Sam eins og hann er oft kallaður stjórnaði Everton í fyrsta sinn í dag.

Niðurstaðan í fyrsta leiknum hans var 2-0 sigur á Huddersfield, en þeir Gylfi Sigurðsson og Dominic Calvert-Lewin skoruðu mörk Everton í dag.

„Fyrra markið í dag róaði okkur niður," sagði Allardyce en þar er hann að tala um mark Gylfa Sigurðssonar sem hann skoraði í upphafi seinni háfleiks.

„Þetta hefði getað verið meiri skemmtun, ef boltinn hefði gengið hraðar á milli manna, en við getum byggt á þessari frammistöðu," sagði Sam Allardyce að lokum.

Sam Allardyce fer með sína menn í Everton í heimsókn á Anfield næstu helgi en áður en kemur að því leika þeir í Evrópudeildinni næstkomandi fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner