Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 02. desember 2017 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Wenger: Ég finn til með leikmönnunum
Andre Marriner og Arsene Wenger ræða málin í kvöld.
Andre Marriner og Arsene Wenger ræða málin í kvöld.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger var að sjálfsögðu á hliðarlínunni í kvöld þegar Arsenal fékk Manchester United í heimsókn. Manchester liðið hafði betur í leiknum, 1-3.

Wenger var skiljanlega mjög svekktur með tapið enda fengu leikmenn hans mörg færi til að skora en David de Gea reyndist þeim erfiður og átti stórleik í markinu hjá Manchester United í dag.

„Ég er mjög vonsvikinn því þetta var góð frammistaða hjá okkur í dag," sagði Wenger.

Wenger hafði lítinn áhuga á því að svara spurningum um frammistöðu dómarans í dag sem var Andre Marriner.

„Ég hef engan áhuga á því lengur að tjá mig um dómara."

„Ég finn til með leikmönnunum því þeir gáfu svo mikið í þetta en uppskáru ekkert fyrir það," sagði Arsene Wenger að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner