Fotbolti.net
02.12.19 - 22:12
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Austin skaut West Brom aftur á toppinn

Championship: Austin skaut West Brom aftur á toppinn
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Preston 0 - 1 West Brom</b>
0-1 Charlie Austin ('90, víti)
West Bromwich Albion er komið aftur á topp ensku Championship deildarinnar eftir sigur á útivelli gegn Preston North End.

Staðan var markalaus í bragðdaufum leik þar til Charlie Austin, sem kom inná sem varamaður á 75. mínútu, steig á vítapunktinn undir lok venjulegs leiktíma.

Declan Rudd, markvörður Preston, braut klaufalega af sér innan vítateigs. Þetta var þriðja tap Preston í röð en liðið er enn í umspilssæti, með 31 stig eftir 19 umferðir.

West Brom er með 42 stig á toppinum, tveimur stigum meira en Leeds. Þetta var fimmti sigur liðsins í röð.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.