Fotbolti.net
02.12.19 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Guardiola: Leikmenn þurfa að hafa trú

Pep Guardiola, stjóri City.

Pep Guardiola, stjóri City.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, ellefu stigum á eftir toppliði Liverpool. Pep Guardiola, stjóri City, segir að leikmenn sínir megi ekki missa trúna þó Liverpool sé með vænlegt forskot.

Manchester City heimsækir Burnley annað kvöld.
„Leikmenn þurfa að trúa. Þeir þurfa fyrst að hafa trú á því að við vinnum á morgun," segir Guardiola.

„Þeir mega ekki hugsa of mikið um liðin sem eru fyrir framan okkur. Við þurfum að hugsa um hvað þarf að gera til að vinna leiki. Við þurfum að nýta færin okkar betur og vera einbeittari í þeim færum sem við fáum á okkur."

Leicester er nú í öðru sæti deildarinnar en Brendan Rodgers og lærisveinar eru átta stigum á eftir Liverpool.

„Leicester er í titilbaráttunni því liðið hefur gert gríðarlega vel síðan á síðasta tímabili. Þegar Brend tók við liðinu breytti hann leikstílnum. Þeir eru að gera flotta hluti," segir Guardiola.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Aston Villa10-115
9Brentford10+514
10Leeds10+214
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Sunderland10-98
19Man Utd10-77
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.