Sindri Kristinn Ólafsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík til næstu tveggja ára en þetta kemur fram í tilkynningu frá Keflvíkingum.
Keflavík vann Lengjudeildina í sumar og komst upp í Pepsi Max-deildina ásamt Leikni.
„Sindri sem er 23 ára hefur leikið allan sinn feril með Keflavík og ætlar að taka slaginn með okkur í efstu deild að ári," segir í tilkynningu Keflvíkinga.

Sindri hefur leikið 109 leiki fyrir meistaraflokk og 17 leiki með yngri landsliðum Íslands.
„Þetta er mikið gleðiefni fyrir okkur enda Sindri verið einn traustasti leikmaður liðsins í mörg ár. Þá er hann algjörlega sannur Keflvíkingur og frábær félagsmaður."
Sindri var nýlega í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net en hægt er að nálgast það viðtal með því að smella hérna.
Athugasemdir