Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. desember 2022 21:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ef þú værir með svona sixpack þá væri allt í lagi að sýna heiminum það"
Mynd: EPA

Kamerún vann Brasilíu í lokaleik G-riðilsins en það dugði ekki til þar sem Kamerún er fallið úr leik.


Vincent Aboubakar skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma og hann var eðlilega virkilega ánægður með það og fagnaði með því að rífa sig úr að ofan.

Hann var hins vegar búinn að fá gult spjald áður í leiknum og dómari leiksins bað hann afsökunar þegar hann gaf honum sitt annað gula spjald og þar með rautt eftir fagnaðarlætin.

Fagnið var til umræði i HM kvöldi á Rúv.

„Honum er alveg slétt sama. Þetta er gott mark, rífur sig úr bolnum og frábært hvernig dómarinn gefur honum gula spjaldið," sagði Óli Kristjáns.

„Þetta er bara kurteisi. Ef þú værir með svona sixpack þá væri allt í lagi að sýna heiminum það, er það ekki?" sagði Heimir Hallgrímsson létttur.


Athugasemdir
banner
banner