Fotbolti.net
02.12.22 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Sindri Sverris spáir í Serbía - Sviss

Sindri Sverrisson.

Sindri Sverrisson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður hörkuleikur milli Serbíu og Sviss í lokaumferð E-riðils klukkan 19:00.

Serbar eru tveimur stigum á eftir Svisslendingum og verða að vinna til að eiga möguleika á að komast í 16-liða úrslit. Serbía hefur aldrei komist í útsláttarkeppni HM.

Sviss þarf aðeins jafntefli, ef Kamerún vinnur ekki Brasilíu.

Sindri Sverrisson, íþróttafréttamaður hjá Sýn, er spámaður fyrir þennan hörkuleik sem framundan er.
Serbía 1 - 1 Sviss
Ég dró Sviss í HM-veðmáli í vinnunni svo það gæti mögulega litað aðeins skoðun mína en ég er einhvern veginn sannfærður um að Svisslendingar muni gera nóg til að komast áfram í 16-liða úrslitin. Þeir eru líka ekkert að vesenast í að halda framhjá hver öðrum. Þetta verður kannski ekkert voðalega fallegt en spennandi. Tippa á 1-1 jafntefli þar sem Akanji nær einhvern veginn að troða inn marki og Mitrovic skorar auðvitað fyrir Serba.



HM: G-riðill
19:00 Serbía - Sviss
19:00 Kamerún - Brasilía
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.