Liverpool skoðar Davies - City fer á markaðinn - Man Utd vill Gutierrez - Bruno og Garnacho ekki öruggir - Fleiri orðaðir frá United
   fös 02. desember 2022 20:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Xhaka æsti upp í Serbum sem vildu fá víti
Mynd: EPA

Serbía og Sviss eigast nú við í lokaumferð G riðils á HM í Katar en Sviss er með 3-2 forystu og er því á leiðinni í 16-liða úrslitin.


Serbía reyna hvað þeir geta að næla í jöfnunarmarkið en Aleksandar Mitrovic vildi fá vítaspyrnu en dómaranum fannst hann falla full auðveldlega í teignum.

Í framhaldi af þessu sauð uppúr á varamannabekk Serba en svo virtist sem Granit Xhaka leikmaður Sviss hafi æst þá upp en hann virtist segja eitthvað í átt að bekknum og endaði á því að grípa um sig miðjan.

Þetta fór ekki vel í varamenn og þjálfarateymi Serbíu og allir stukku uppúr sætunum, þetta var stöðvað áður en allt fór í háaloft en Predrag Rajkovic varamarkvörður Serba uppskar gult spjald.


Athugasemdir
banner
banner