Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. janúar 2020 16:00
Elvar Geir Magnússon
Boban: Megum ekki fela okkur bak við Zlatan
Zvonimir Boban.
Zvonimir Boban.
Mynd: Getty Images
Zvonimir Boban, stjórnarmaður AC Milan, segist fagna endurkomu Zlatan Ibrahimovic en segir að leikmenn liðsins geti ekki falið sig á bak við Svíann.

Zlatan á að hjálpa Milan að rétta úr kútnum en liðið er í ellefta sæti ítölsku A-deildarinnar, fjórtán stigum frá Meistaradeildarsæti.

„Það er gleðiefni að fá svona einstakan karakter og leikmann til félagsins. Zlatan hefur jákvæð áhrif á liðið og félagið," segir Boban.

„Að því sögðu þá þurfa úrslitin að fylgja. Zlatan fær mikla athygli fjölmiðla en það má ekki gleyma 4-0 tapi okkar gegn Atalanta. Það var óásættanlegt. Enginn okkar má fela sig á bak við Zlatan."

Sjálfur segist Zlatan ekki vera mættur til AC Milan sem lukkudýr, hann ætli sér að láta að sér kveða á vellinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner