Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 03. febrúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kári Gautason framlengir við KA
Kári Gautason
Kári Gautason
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Gautason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA en þessi 19 ára gamli leikmaður kom við sögu í einum leik í deild og einum í bikar síðasta sumar.

Hann lék einnig einn leik með liðinu í efstu deild sumarið 2021.


Þá var hann á láni hjá Magna í 2. deildinni um mitt sumar og lék þar 8 leiki. Hann hefur leikið 15 leiki í meistaraflokki á ferlinum.

„Það eru afar jákvæðar fréttir að Kári hafi nú framlengt við KA og ljóst að það verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hans á vellinum í gula og bláa búningnum," segir í tilkynningu frá KA.


Athugasemdir
banner
banner
banner