Willum Þór Willumsson átti góðan leik er BATE Borisov vann Neman Grodno 3-1 í Hvíta-Rússlandi í dag. Þetta var fjórði deildarsigur BATE á tímabilinu.
Ekkert er spilað í stærstu deildum Evrópu þessa stundina en það er þó allt í fullu fjöri í Hvíta-Rússlandi.
Willum lék allan leikinn í sigri BATE í dag og átti hann stóran þátt í þriðja markinu.
Hann fékk boltann á miðjunni og átti langa sendingu fram völlinn á Igor Stasivech sem lagði boltann á Pavel Nehachjik sem skoraði örugglega.
BATE er í 3. sæti deildarinnar með 13 stig eftir sjö leiki, aðeins þremur stigum á eftir toppliði FK Slutsk.
Hægt er að sjá þriðja markið með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Hér má sjá þriðja mark BATE
Athugasemdir