Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 03. maí 2020 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Matuidi var einkennalaus: Veiran gerði mig geðveikan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blaise Matuidi er einn af þremur leikmönnum Juventus sem greindust með kórónuveiruna, auk Daniele Rugani og Paulo Dybala.

Miðjumaðurinn viðurkennir að það hafi tekið á að vera greindur með veiruna, þó hann hafi gengið í gegnum veikindin alveg einkennalaus.

„Þetta var mjög erfitt. Þegar ég greindist með veiruna þá mátti ég ekki einu sinni fara út í búð. Veiran gerði mig geðveikan," sagði Matuidi í viðtali á YouTube.

„Ég var ekki með nein einkenni en ég fór í sjokk um leið og tilkynningin barst mér. Ég var lafandi hræddur, ég óttaðist um heilsu fjölskyldu minnar og vina.

„Þetta var erfitt fyrir fjölskylduna en mér tókst að fullvissa þau um að það væri í lagi með mig. Þetta eru ekki ánægjulegir tímar, við viljum bara að þessu ljúki sem fyrst.

„Ég spyr sjálfan mig: Hvernig mun fótboltaheimurinn líta út eftir þetta?"

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner