Lukkudýr hafa verið ómissandi hluti af HM frá 1966 en fyrir keppnina 2026 eru þau þrjú talsins, eitt frá hverjum gestgjafa.
Það eru elgurinn Hlynur frá Kanada, jagúarinn Zayu frá Mexíkó og skallaörninn Clutch frá Bandaríkjunum.
Það eru elgurinn Hlynur frá Kanada, jagúarinn Zayu frá Mexíkó og skallaörninn Clutch frá Bandaríkjunum.
Eftir mótið verður hægt að leggja mat á hvaða sess þessi hressu lukkudýr eiga á listanum yfir bestu lukkudýr HM sögunnar.
Sérstök dómnefnd Fótbolta.net hefur rýnt í öll lukkudýr heimsmeistaramóta hingað til og setti saman topp tíu lista sem hægt er að sjá hér að neðan.
En byrjum á einum geðþekkum mexíkóskum strák sem bankar á dyrnar á topp tíu listanum...
Bankar á dyrnar: Juanito: Mexíkó, 1970 - Hinn bollulegi og vinalegi Juanito var að sjálfsögðu með mexíkanahatt. Fyrsta manneskjan til að vera lukkudýr HM og það á goðsagnakenndu móti.
10. sæti - Zabivaka: Rússland, 2018 - Úlfurinn á stað í hug og hjörtu okkar Íslendinga eftir eina HM sem við höfum komist á. Er með gleraugu í stíl við Edgar Davids.
9. sæti - Fuleco: Brasilia, 2014 - Beltisdýr sem er vinur Ronaldo. Fyrirmynd Fuleco er beltisdýr í útrýmingarhættu og honum er umhugað um stöðu Amazon regnskógarins.
8. sæti - Goleo og Pille: Þýskaland, 2006 - Lukkuljónið Goleo var hannaður af brúðufyrirtæki Jim Henson og er því skyldur Prúðuleikurunum. Hann á vin sem er talandi bolti sem heitir Pille og er uppfullur af fróðleik um fótbolta.
7. sæti - Pique: Mexíkó, 1986 - Chilipiparinn Pique var lukkudýrið 1986. Með yfirvaraskegg og fangar vel anda matargerðarlistar Mexíkóa. Margir hefðu viljað sjá hann ofar á listanum.
6. sæti - Footix: Frakkland, 1998 - Hani hefur frá fornöld verið eitt af einkennistáknum Frakklands og fótboltahaninn Footix býr yfir þeim eiginleikum að vera með takka undir fótunum.
5. sæti - World Cup Willie: England, 1966 - HM Villi er brautryðjandi og fyrirmynd lukkudýra. Fyrsta HM lukkudýrið er goðsögn í bransanum, um hann hafa verið samin ljóð og sungnir söngvar.
4. sæti - Striker: Bandaríkin, 1994 - Hundurinn Striker sló rækilega í gegn og var áberandi í kringum mótið 1994. Warner bræður sáu um að hanna þennan sókndjarfa hund sem er ákaflega vel heppnaður. Óheppinn að komast ekki á pall.
3. sæti - La'eeb: Katar, 2022 - HM í Katar var afskaplega vel heppnað mót með vel heppnað lukkudýr. La'eeb sveif um eins og vinalegi draugurinn Kasper. Innblásinn af hefðbundnum arabískum höfuðfatnaði.
2. sæti - Ciao: Ítalía, 1990 - Kubbakallinn Ciao (stundum kallaður Óli Prik) var framlag Ítalíu. Óhemju góður í að halda boltanum á lofti. Listræn hönnun og þegar hann er tekinn í sundur stafar hann ITALIA. Án fótboltans er hann höfuðlaus sem táknar ást okkar á leiknum fagra.
1. sæti - Naranjito: Spánn, 1982 - Á toppnum trónir spænska appelsínan Narjanito, án nokkurs vafa. Var það vinsæll að hann fékk sinn eigin sjónvarpsþátt, feikilega skemmtilegar teiknimyndir. Þar lenti hann í ótrúlegum ævintýrum með vélmenninu Imarchi og fleiri góðum vinum sínum. Ekki skemmir fyrir að mótið 1982 var stórkostlegt.





