Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. júlí 2018 22:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eiður Smári spáði hárrétt fyrir um úrslitin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen, ein af okkar albestu leikmönnum í sögunni, spáði hárrétt fyrir um úrslitin í leik Kólumbíu og Englands á HM í Rússlandi í kvöld.

Leikurinn endaði 1-1 og fór í vítaspyrnukeppni, þar sem Englendingar höfðu betur.

Eiður spáði í 16-liða úrslitin fyrir 188 Bet

„Ég hef verið hrifinn af Englandi hingað til. Þeir virka ferskir, fullir af orku og eru að skemmta sér vel. Gareth Southgate virðist vera að stýra liðinu vel. Kólumbía er með góða leikmenn og var himinlifandi með að fá þá áfram. Ef þeir hefðu ekki fengið rautt spjald snemma gegn Japan þá hefði verið fínn möguleiki á þremur sigrum úr þremur leikjum hjá þeim. Þessi leikur mun fara alla leið og England mun kannski loksins vinna í vítaspyrnukeppni," skrifaði Eiður.

Eiður hafði kannski rétt fyrir sér með þennan leik en hinir leikirnir í 16-liða úrslitunum voru ekki alveg eins réttir hjá Eiði.
Athugasemdir
banner
banner