Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. júlí 2019 15:33
Magnús Már Einarsson
Anderlecht og félög á Englandi sýna Valgeiri áhuga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Belgíska stórliðið Anderlecht hefur sýnt Valgeiri Valgeirssyni, leikmanni HK, áhuga samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net.

Félög frá Englandi hafa einnig verið að skoða Valgeir undanfarið.

Valgeir er 16 ára gamall en hann skoraði á dögunum sitt fyrsta mark í Pepsi Max-deildinni með HK.

Valgeir er efnilegur kantmaður en hann hefur verið í byrjunarliði í síðustu leikjum HK.

Þá á Valgeir 17 leiki að baki með U17 ára landsliði Íslands en hann var í liðinu sem fór í lokakeppni EM í vor.

Sjá einnig:
Skoraði sitt fyrsta mark 16 ára og 268 daga gamall - Tilfinningin geggjuð
Athugasemdir
banner
banner