Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 03. júlí 2019 11:00
Magnús Már Einarsson
Ayoze Perez verður dýrastur í sögu Leicester
Ayoze Perez tekur fagnið sitt.
Ayoze Perez tekur fagnið sitt.
Mynd: Getty Images
Leicester er að kaupa framherjann Ayoze Perez frá Newcastle á 30 milljónir punda.

Perez verður dýrasti leikmaðurinn í sögu Leicester en fyrra metið er frá því árið 2016 þegar Islam Slimani kom frá Sporting Lisabon á 29 milljónir punda.

Hinn 25 ára gamli Perez á eftir að standast læknisskoðun og semja um kaup og kjör áður en skiptin ganga í gegn.

Perez kom til Newcastle frá Tenerife árið 2014 á einungis 1,6 milljón punda en ferill hans hefur legið mikið upp á við síðan þá.

Á síðasta tímabili skoraði Perez tólf mörk í ensku úrvalsdeildinni með Newcastle.
Athugasemdir
banner
banner
banner