Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 03. júlí 2019 20:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Íslendingavaktin 
Frederik Schram á reynslu hjá Vejle
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Markvörðurinn Frederik Schram er þessa dag­ana við æf­ing­ar hjá danska 1. deildarliðinu Vejle og verður þar til reynslu út þessa viku. Íslendingavaktin greinir frá.

Frederik æfði með Shrewsbury í síðustu viku og lék einn æfingaleik með félaginu. Vegna fjárhagsstöðu Shrewsbury mun félagið ekki bjóða Frederik samning.

Frederik hefur undanfarin ár leikið með danska 1. deildarfélaginu, Roskilde. Samningur hans þar rann út fyrir tveimur dögum.

Frederik var í hópnum á HM í Rússlandi í fyrra og á að baki fimm A-landsliðsleiki.
Athugasemdir
banner
banner