Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 03. júlí 2019 23:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðmunda Brynja að bíða eftir myndatöku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmunda Brynja Óladóttir, leikmaður KR, meiddist á hné í bikarleik með KR gegn Tindastóli.

Hún fór af velli eftir um klukkutíma leik. Guðmunda hafði fyrir leik KR gegn Selfossi í kvöld leikið alla leiki liðsins í sumar.

Í samtali við Fótbolta.net í dag sagðist Guðmunda vera mjög slæm í hnénu og væri að bíða eftir myndatöku.

Bojana Besic, þjálfari KR, svaraði í svipuðum dúr í viðtali eftir leik KR og Selfoss í kvöld.

„Gumma er að bíða eftir að komast í myndatöku og við sjáum til með framhaldið. Vonandi er þetta ekki alvarlegt, mikilvægt að fá hana inn í liðið," sagði Bojana eftir leikinn í kvöld.
Bojana: Ekki svartsýn þó þetta líti illa út
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner