Manchester United hefur boðið David de Gea nýjan og betri samning samkvæmt fréttum frá Englandi.
Marcus Rashford framlengdi samning sinn við United í byrjun vikunnar og félagið vill einnig ganga frá nýjum samningi við De Gea.
Marcus Rashford framlengdi samning sinn við United í byrjun vikunnar og félagið vill einnig ganga frá nýjum samningi við De Gea.
Viðræður við De Gea hafa verið í gangi í marga mánuði en ekkert samkomulag hefur náðst ennþá.
Hinn 28 ára gamli De Gea verður samningslaus næsta sumar en United vill ganga frá nýjum samningi sem fyrst.
De Gea hefur varið mark Manchester United síðan 2011 en hann kom þá til félagsins frá Atletico Madrid.
Athugasemdir