Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 03. júlí 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Manchester United vill fá Bruno Fernandes
Mynd: Getty Images
Manchester United vill kaupa Bruno Fernandes, miðjumann Sporting Lisabon, en Sky Sports greinir frá þessu.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, vill bæta við miðjumanni í hópinn eftir að hafa misst Marouane Fellaini og Ander Herrera undanfarna mánuði.

Umboðsmaður Fernandes fór til Englands í gær til að ræða við áhugasöm félög.

Fernandes gerði nýjan fimm ára samning við Sporting í fyrra og talið er að félagið vilji fá 50 meira milljónir punda fyrir hann.

Fernandes skoraði 32 mörk í 50 leikjum í öllum keppnum með Sporting á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner