Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 03. júlí 2019 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe gefur í skyn að hann verði áfram hjá PSG
Kylian Mbappe verður áfram en hvað með Neymar?
Kylian Mbappe verður áfram en hvað með Neymar?
Mynd: Getty Images
Franski framherjinn Kylian Mbappe er ekki á leið frá Paris Saint-Germain í sumar en hann virtist gefa það til kynna á Twitter í gær.

Mbappe er tvítugur og er tvímælalaust einn besti knattspyrnumaður heims nú þegar en hann er lykilmaður í liði PSG og franska landsliðsins.

Spænsk blöð hafa þó verið að orða hann við Real Madrid og þá hefur enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool komið inn í umræðuna en hann fer ekkert í sumar.

Það má þó búast við einhverjum hreyfingum næsta sumar en Real Madrid virðist vera að undirbúa risatilboð í hann og er talið að félagið hafi unnið að því í einhvern tíma.

Hann ákvað þó að slökkva í orðrómunum sem eru í gangi í sumar og virtist staðfesti þátttöku sína með PSG á komandi tímabili með færslu á Twitter þar sem hann auglýsir treyju félagsins.



Athugasemdir
banner
banner
banner