Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. júlí 2019 19:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-kvenna: Jafntefli í Garðabæ
Diljá Ýr tókst eins og öðrum leikmönnum liðanna ekki að skora í kvöld.
Diljá Ýr tókst eins og öðrum leikmönnum liðanna ekki að skora í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 0 - 0 Þór/KA
Lestu um leikinn

Einum leik er lokið í áttundu umferð Pepsi Max-deildar kvenna. Stjarnan tók á móti Þór/KA.

Fyrri hálfleikur var rólegur og staðan að honum loknum jöfn og markalaus, 0-0.

Í seinni hálfleik fengu bæði lið færi. Diljá Yr Zomers og Sandra Mayor fengu færi fyrir sín lið en tókst ekki að koma boltanum í netið. María Sól í liði Stjörnunnar fékk svo gott færi í uppbótartíma en mistókst einnig að skora.

Jafntefli niðurstaðan. Þór/KA hefur fjórtán stig í 3. sæti deildarinnar á meðan Stjarnan hefur tíu stig í 5. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner