Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 03. júlí 2019 22:51
Helga Katrín Jónsdóttir
Steini: Hálfleiksræðan virkaði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Toppslag Vals og Breiðabliks lauk með 2-2 jafntefli á Hlíðarenda í kvöld. Steini, þjálfari Breiðabliks, var nokkuð sáttur með stigið.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  2 Breiðablik

"Þetta var hörkuleikur og ég er sáttur með stigið eftir að hafa lent 2 mörkum undir. Sáttur við spilamennskuna í seinni hálfleik og byrjunina í fyrri hálfleik en svo kom svolítið shaky kafli hjá okkur."

Blikastelpur voru miklu betri í seinni hálfleik en í þeim fyrri svo hálfleiksræða Steina virkaði greinilega.

"Mínar ræður eru nú aldrei merkilegar, en ég sagði þeim bara að halda áfram og halda hraða og tempói í leiknum og þá munum við skora."

Þegar Steini var spurður út í færanýtingu Blika á tímabilinu sem hefur á köflum verið slæm hafði hann þetta að segja:

"Auðvitað mætti færanýtingin stundum vera betri en þegar við erum duglegar við að skapa færi þá fara mörkin að mjatla."

Steini veit ekki hvort Breiðablik muni styrkja sig í glugganum.

"Það á eftir að koma í ljós. Meiðsli Fjollu hafa náttúrulega áhrif og Andrea Rán og Berglind Baldursdóttir fara til Bandaríkjanna. Svo við þurfum eitthvað að skoða þetta og tökum stöðuna á næstu dögum."
Athugasemdir
banner
banner