Ingibjörg Sigurðardóttir var svekkt eftir tapleikinn gegn Þýskalandi en segir þó að líklega hefðu stelpurnar tapað gegn betra liði.
„Þetta var erfiður leikur, þær spiluðu mjög vel. Mér fannst við vera mjög skipulagðar og gerðum það sem við ætluðum að gera. ég held að á endanum höfum við tapað fyrir betra liði,” sagði Ingibjörg.
„Við gátum tryggt okkur á HM þannig að auðvitað vorum við ekkert svakalega ánægðar eftir leikinn en við þurfum bara að gleyma því og nú er bara þessi leikur sem skiptir máli.”
Ingibjörg er sátt við stemninguna í hópinum, segir stelpurnar hafa náð að snúa sér að næsta verkefni enda reynslunni ríkari eftir EM.
„Við erum á miklu betri stað núna heldur en í fyrra á milli þessara leikja og ég held að það sé eitthvað sem við höfum bætt okkur mikið í,” sagði Ingibjörg.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Miðasala á leikinn er í gangi á tix.is
Athugasemdir