Ísland-Tékkland á morgun klukkan 15:00
„Við vitum að við þurfum að hreinsa hugann fljótt. Við höfum ekki tíma til að velta okkur upp úr einu né neinu. Við fórum strax að hugsa um Tékkana," sagði Sif Atladóttir, varnarmaður íslenska landsliðsins, við Fótbolta.net í dag.
Eftir tap gegn Þýskalandi á laugardaginn á Ísland ekki möguleika á að komast beint á HM. Liðið fer hins vegar að öllum líkindum umspil með sigri á morgun gegn Tékklandi.
Eftir tap gegn Þýskalandi á laugardaginn á Ísland ekki möguleika á að komast beint á HM. Liðið fer hins vegar að öllum líkindum umspil með sigri á morgun gegn Tékklandi.
„Það fara öll spil út á borðið á morgun og þetta eru þrjú stig sem við verðum að ná í."
Leikurinn á morgun hefst klukkan 15:00 þar sem allir leikir í undankeppninni verða að fara fram á sama tíma. Sif vonast þó eftir góðum fjölda áhorfenda.
„Gefið fólkinu frí, komið á völlinn og njótið samverunnar með okkur," sagði Sif létt í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Miðasala á leikinn er í gangi á tix.is
Athugasemdir