Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 03. september 2019 11:50
Arnar Daði Arnarsson
Birkir Bjarna: Búinn að vera mjög mikill áhugi
Icelandair
Birkir Bjarnason í leiknum gegn Albaníu í júní.
Birkir Bjarnason í leiknum gegn Albaníu í júní.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er ekki draumastaða að vera ekki með lið en ég verð að gleyma því núna og taka þessa leiki með krafti. Við sjáum til hvað gerist eftir leikina," sagði Birkir Bjarnason við Fótbolta.net

Birkir komst að samkomulagi um starfslok hjá Aston Villa í síðasta mánuði og er því félagslaus í augnablikinu.

„Það er búinn að vera mjög mikill áhugi og ég gæti verið kominn með lið eins og staðan er í dag. Við ákváðum að bíða aðeins með það."

„Ég geri ekkert meðan þetta landsliðsverkefni er. Ég hef ekki efni á því. Ég þarf að æfa með liðinu og það væri erfitt að fara eitthvað á næstu dögum. Ég einbeiti mér að landsliðinu."

Birkir hefur fengið að æfa á æfingasvæði Aston Villa að undanförnu. „Ég hef verið hjá Villa með þjálfurum. Ég hef æft vel og er í mjög góðu formi."

Á dögunum var Birkir nálægt því að ganga til liðs við ónefnt félag.
„Ég var kominn með samning og búinn að semja og allt var klárt en það gekk ekki upp í þetta skipti," sagði Birkir.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner