Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. september 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Ennþá óljóst með Arnór Sig - Skýrist eftir æfingu á morgun
Icelandair
Arnór Sigurðsson.
Arnór Sigurðsson.
Mynd: Eyþór Árnason
Ennþá er óljóst hvort Arnór Sigurðsson nái leik Íslands og Moldavíu í undankeppni EM á laugardag.

Arnór meiddist í leik með CSKA Moskvu um miðjan ágúst og hefur verið frá keppni síðan þá. Hann er nú að prófa að æfa með íslenska landsliðinu og í kjölfarið kemur í ljós hvort hann verði leikfær á laugardag.

„Staðan á honum er í smá vafa núna. Við tókum rólega æfingu í gær og hann var með á henni," sagði Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari við Fótbolta.net í dag.

„Við sjáum hvernig hann kemur út úr næstu tveimur æfingum. Við vitum ekki almennilega með hann fyrr en eftir það."

Allir aðrir leikmenn í íslenska landsliðshópnum eru heilir fyrir leikinn á laugardaginn að sögn Freys.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner