Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 03. september 2019 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Maguire: Við getum gert betur
Harry Maguire.
Harry Maguire.
Mynd: Getty Images
Stigasöfnun Harry Maguire og félaga hans í Manchester United hefur ekki gengið vel í upphafi tímabils, liðið er með 5 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Á laugardaginn gerði liðið 1-1 jafntefli við Southampton.

„Þetta var enn einn leikurinn sem við áttum skilið að vinna. Við sköpuðum mörg færi og töpuðum þarna tveimur stigum," sagði Maguire þegar hann ræddi um jafnteflið við Southampton.

„Byrjunin á tímabilinu hefur einmitt verið svona. Við áttum skilið að vinna Wolves og svo átti Crystal Palace tvö skot á markið gegn okkur og bæði skotin enduðu í netinu."

„Við getum klárlega gert betur, sérstaklega þegar við erum með boltann. Við höfum verið að missa boltann alltof mikið, við vorum of hægir og þurfum að bæta í hraðann og halda boltanum betur," sagði Maguire um leikinn gegn Southampton.

„Við erum Manchester United og viljum hafa stjórn á leikjunum sem við spilum, það hafa komið kaflar þar sem við höfum ekki haft nógu góð tök á leiknum og okkur hefur verið refsað fyrir það," sagði Maguire.
Athugasemdir
banner
banner
banner