U15 ára kvennalandslið Íslands gerði 1-1 jafntefli við Mjanmar á æfingamóti í Víetnam í dag.
Snædís María Jörundsdóttir gerði jöfnunarmarkið eftir vel útfærða sókn.
Íslenska liðið var heilt yfir betra í leiknum en leikið var við erfiðar aðstæður þar sem hitinn fór upp í 36 gráður.
Ísland mætir Víetnam í síðasta leik mótsins á fimmtudag klukkan 11:30.
Hægt er að sjá markið Íslands hér fyrir neðan.
Athugasemdir