þri 03. september 2019 14:10
Magnús Már Einarsson
U15 kvenna gerði jafntefli við Mjanmar
U15 landsliðshópurinn
U15 landsliðshópurinn
Mynd: Mist Rúnarsdóttir
U15 ára landslið kvenna gerði 1-1 jafntefli við Mjanmar á móti í Víetnam.

Markalaust var í hálfleik en Mjanmar komst yfir á 58. mínútu. Ísland sótti mikið eftir markið og setti pressu á vörn Mjanmar.

Á endanum tókst þeim að jafna metin og var þar að verki Snædís María Jörundsdóttir leikmaður Stjörnunnar.

Leikurinn fór fram í erfiðum aðstæðum, hitinn var mikill eða 31 gráða, en íslenska liðið var heilt yfir sterkari aðilinn í leiknum.

Stelpurnar mæta Víetnam í þriðja, og síðasta, leik sínum á mótinu á fimmtudaginn og hefst leikurinn kl. 11:30.
Athugasemdir
banner
banner