Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. október 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Aubameyang svarar: Kallar framkvæmdastjóra Dortmund trúð
Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang.
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Arsenal, hefur svarað ummælum sem Hans-Joachim Watzke, framkvæmdastjóri Dortmund lét falla í vikunni.

„Pierre-Emerick Aubameyang, sem spilar vel fyrir Arsenal, líður örugglega vel þegar hann lítur á bankareikninginn, en á miðvikudögum er hann sorgmæddur þegar hann horfir á Meistaradeildina í sjónvarpinu," sagði Watzke í vikunni en Aubameyang fór frá Dortmund til Arsenal í fyrra.

Aubameyang mætti með færslur á Twitter í dag til að svara fyrir sig.

„Það er betra fyrir þig að ég tali ekki um ástæðu þess að ég fór frá Dortmund herra Watzke, þú ert trúður," sagði Aubameyang í dag.

„Ég man þegar þú sagðist aldrei ætla að selja Ousmane (Dembele) og síðan sástu meira en 100 milljónir evra og þá varstu fyrstur til að taka þann pening. Vinsamlegast ekki tala um peninga!!! Láttu mig vinsamlegast í friði."
Athugasemdir
banner
banner
banner