Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. október 2019 17:30
Magnús Már Einarsson
Fabianski ekki meira með á árinu
Lukasz Fabianski.
Lukasz Fabianski.
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini, stjóri West Ham, hefur nú staðfest að meiðsli markvarðarins Lukasz Fabianski eru enn verri en talið var í fyrstu.

Hinn 34 ára gamli Fabianski verður frá keppni fram á nýtt ár en hann verður að minnsta kosti frá næstu þrjá mánuðina.

Pólverjinn meiddist í leiknum gegn Bournemouth um síðustu helgi.

„Auðvitað er þetta mikið áfall því Lukasz var að spila eins og einn besti markvörðurinn í ensku úrvalsdeildinni," sagði Pellegrini í dag.

Spænski markvörðurinn Roberto kemur inn í liðið í stað Fabianski en hann kom til West Ham frá Espanyol í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner