Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 03. október 2019 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Martinez negldi bolta Gnabry upp í stúku
Serge Gnabry.
Serge Gnabry.
Mynd: Getty Images
Serge Gnabry átti magnaðan leik þegar Bayern München vann ótrúlegan 7-2 sigur gegn Tottenham í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudagskvöld.

Gnabry, sem er fyrrum leikmaður Arsenal, skoraði fjögur mörk.

Sjá einnig:
Gnabry aðeins sá ellefti sem fær fullt hús frá L'Equipe

Það fór fyndið myndband í dreifingu eftir leikinn þar sem Gnabry ætlaði sér að taka boltann sem spilað var með - eins og leikmenn þegar þeir skora þrjú eða fleiri mörk.

Javi Martinez, liðsfélagi Gnabry, ákvað hins vegar að negla boltanum upp í stúku. Gnabry var ekki alveg sáttur með þetta hjá Spánverjanum.

Gnabry fékk þó að eiga bolta úr leiknum eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Sjón er sögu ríkari!



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner