Íslandsmeistarar ÍA í 2. flokki karla mættu Levadia Tallinn í gær í fyrri viðureign liðanna í Evrópukeppni unglingaliða á Akranesi í gær.
ÍA vann 4-0 sigur og er með öll spil á hendi fyrir seinni leikinn sem verður í Eistlandi 23. október.
Ef ÍA klárar sitt verður mótherjinn Derby eða Minsk í næstu umferð, líklega Derby en enska liðið vann 2-0 útisigur í fyrri leiknum í Hvíta-Rússlandi.
ÍATV sýndi leikinn í gær í beinni og má sjá mörkin hér að neðan.

ÍA 4 - 0 Levadia Tallinn
1-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('22)
2-0 Marteinn Theodórsson ('49)
3-0 Brynjar Snær Pálsson ('70)
4-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('86, víti)
Athugasemdir