Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 03. október 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Suarez jafnaði markafjölda síðustu tveggja leiktíða
Mynd: Getty Images
Luis Suarez var á skotskónum í Meistardeildinni í gærkvöldi. Hann gerði bæði mörk Barcelona í 2-1 heimasigri gegn Inter.

Lautaro Martinez kom Inter yfir eftir aðeins tvær mínútur, en í seinni hálfleiknum sneri Barcelona leiknum sér í vil. Lokatölur voru 2-1 og skoraði Suarez bæði mörkin.

Suarez hefur ekki raðað inn mörkunum í Meistaradeildinni undanfarin tímbil. Með mörkunum í gær jafnaði hann markafjölda sinn frá síðustu tveimur tímabilum.

Hinn 32 ára gamli Suarez skoraði aðeins eitt mark í 10 leikjum í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð og sömuleiðis eitt mark í 10 leikjum tímabilið þar áður.

Það er vonandi fyrir Barcelona að hann skori enn fleiri mörk í Meistaradeildinni á þessu tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner