Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 03. október 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Ter Stegen: Suarez lokaði munninum hjá mörgum
Luis Suarez.
Luis Suarez.
Mynd: Getty Images
Marc-Andre ter Stegen, markvörður Barcelona, segir að Luis Suarez hafi slökkt í gagnrýnisröddum með tveimur mörkum í 2-1 sigri á Inter í Meistardeildinni í gær.

Á dögunum bauluðu stuðningsmenn Barcelona á Suarez þegar hann var tekinn af velli í leik gegn Villarreal. Úrúgvæinn hafði þá ekki skorað í þremur leikjum í röð.

Suarez svaraði með því að skora gegn Getafe um helgina og tvö mörk gegn Inter í gær.

„Suarez lokaði munninum hjá mörgum með þessari frammistöðu," sagði Ter Stegen.

„Hann er alltaf einbeittur, gerir sitt besta og leggur hart að sér. Við vitum hvað við höfum í honum. Hann er alltaf þarna til að skora mörk þegar það skiptir máli."
Athugasemdir
banner
banner
banner