Varnarjaxlinn Virgil van Dijk segir að Liverpool geti bætt sig eftir 4-3 sigur á Salzburg í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Liverpool komst í 3-0, en kastaði frá sér forystunni og jafnaði Salzburg, 3-3. Mohamed Salah kom Liverpool til bjargar og skoraði sigurmarkið tæpum 10 mínútum eftir að Salzburg jafnaði.
„Við getum bætt okkur, það er augljóst," sagði Van Dijk í samtali við Viasport.
„Þeir voru góðir, það var mikil hreyfing á þeim framarlega á vellinum. Þeir náðu öllum seinni boltum, sérstaklega í seinni hálfleiknum. En ég er mjög ánægður að við skyldum vinna."
„Það verður að hrósa þeim. Salzburg er mjög gott lið. Þeir spila góðan fótbolta og þeir gáfust ekki upp."
„Við getum gert betur, og við verðum að bæta okkur enn frekar."
Athugasemdir