Fotbolti.net
03.10.22 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Zubimendi segist ekki hugsa um Barcelona

Zubimendi segist ekki hugsa um Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Varnarsinnaði miðjumaðurinn Martin Zubimendi er ofarlega á óskalista Xavi, þjálfara Barcelona, og hefur verið orðaður við félagsskipti næsta sumar þegar samningur hans við Real Sociedad rennur út.

Zubimendi er 23 ára með einn A-landsleik að baki fyrir Spán en hann hefur verið lykilmaður í sterku liði Sociedad undanfarin ár.

„Mér líður mjög vel hjá Real Sociedad og það er bara tímaspursmál hvenær ég skrifa undir nýjan samning," sagði Zubimendi þegar hann var spurður út í möguleg skipti til Barca.

„Vill Xavi fá mig? Ég hugsa ekki einu sinni um það. Ég er einbeittur að Real Sociedad og engu öðru."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.