Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. nóvember 2019 13:07
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Crystal Palace og Leicester: Vardy og Perez mættir
Vardy er meðal markahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar, með níu mörk í tíu leikjum.
Vardy er meðal markahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar, með níu mörk í tíu leikjum.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace tekur á móti Leicester í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 14:00 á íslenskum tíma og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Heimamenn, undir stjórn Roy Hodgson, gera eina breytingu á liðinu sem náði 2-2 jafntefli við Arsenal á Emirates um síðustu helgi. Andros Townsend dettur út vegna meiðsla og kemur Jeffrey Schlupp inn í hans stað.

Brendan Rodgers gerir þá enga breytingu á byrjunarliðinu sem skoraði níu mörk gegn Southampton í síðustu umferð. Jamie Vardy og Ayoze Perez, sem skoruðu þrennu hvor, byrja báðir.

Bæði lið hafa farið vel af stað á tímabilinu. Leicester getur jafnað Chelsea á stigum í þriðja sæti deildarinnar með sigri á meðan Palace getur komist yfir Arsenal og upp í fimmta sæti með sigri.

Crystal Palace: Guaita, Ward, Van Aanholt, Cahill, Tomkins, Schlupp, Milivojevic, Kouyaté, McArthur, Zaha, Ayew
Varamenn: Hennessey, Dann, Kelly, McCarthy, Camarasa, Meyer, Benteke

Leicester: Schmeichel, R. Pereira, Evans, Soyuncu, Chilwell, Ndidi, Tielemans, Maddison, Perez, Barnes, Vardy
Varamenn: Ward, Justin, Morgan, Praet, Albrighton, Gray, Iheanacho
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner