Ålborg 0 - 1 Midtjylland
0-1 Ogochukwu Onyeka ('11)
0-1 Ogochukwu Onyeka ('11)
Mikael Anderson lék allan leikinn á vinstri kanti Midtjylland í danska boltanum í dag.
Mið-Jótlendingar heimsóttu Álaborg og skoraði Ogochukwu Onyeka á elleftu mínútu leiksins eftir atgang í vítateignum í kjölfar hornspyrnu.
Mikael og félagar voru betri í leiknum en þeim tókst ekki að bæta við öðru marki. Það kom ekki að sök því heimamenn skoruðu ekki og lokatölur því 0-1.
Midtjylland er á svakalegri siglingu. Þetta var fjórði sigurinn í röð og er liðið með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar. Kaupmannahöfn er í öðru sæti en á leik til góða síðar í dag, gegn Eggerti Gunnþóri Jónssyni og félögum í SönderjyskE.
Athugasemdir