Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. nóvember 2019 21:17
Aksentije Milisic
Einkunnir Everton og Spurs: Eriksen og Son fá 5 - Alli bestur
Alli fagnar marki sínu í dag.
Alli fagnar marki sínu í dag.
Mynd: Getty Images
Gylfi fær 7 fyrir innkomu sína.
Gylfi fær 7 fyrir innkomu sína.
Mynd: Getty Images
Everton og Tottenham skildu jöfn 1-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag á Goodison Park. Dele Alli kom gestunum yfir en Cenk Tosun jafnaði metin á 98. mínútu. Bætt var við tólf mínútum við venjulega leiktíma vegna fótbrots Andre Gomes.

Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir fyrir frammistöður þeirra í dag.

Hjá heimamönnum voru Digne, Gomes og Delph allir með 7. Walcott, Iwobi og Richarlison þóttu slakastir hjá Everton en þeir fengu 5. Þá fékk Gylfi 7 fyrir sitt framlang þegar hann kom inn af bekknum.

Hjá Tottenham fékk Dele Alli 8 og var valinn maður leiksins. Eriksen, Son og Aurier fengu lægstu einkunn hjá Spurs sem var 5.

Einkunnir Sky Sports:

Everton: Pickford (6), Sidibe (6), Digne (7), Holgate (6), Mina (6), Gomes (7), Delph (7), Davies (6), Walcott (5), Iwobi (5), Richarlison (5)

Varamenn: Sigurdsson (7), Tosun (7)

Tottenham: Gazzaniga (6), Davies (7), Aurier (5), Sanchez (6), Alderweireld (6), Ndombele (6), Sissoko (6), Eriksen (5), Alli (8), Moura (6), Son (5)

Varamenn: Lo Celso (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner