Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. nóvember 2019 20:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Féll í yfirlið í fagnaðarlátum Djurgården
Keflvíkingar fagna árið 2005. Þar féll enginn í yfirlið, að því er fréttaritari best veit. Fögnuður er eina tenging myndarinnar við fréttina.
Keflvíkingar fagna árið 2005. Þar féll enginn í yfirlið, að því er fréttaritari best veit. Fögnuður er eina tenging myndarinnar við fréttina.
Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Djurgården varð í gær sænskur meistari. Liðið þurfti að minnsta kosti stig gegn Norrköping og var 2-0 undir í hálfleik. Djurgården kom til baka og náði í stigið sem á þurfti að halda.

Yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu fagnaði mikið eftir leik og féll í yfirlið þegar hann hélt á verðlaunagripnum.

Bosse Anderson heitir maðurinn og fögnuð hans má sjá hér að neðan sem og viðtal sem hann var í við SportExpressen eftir leikinn.



Athugasemdir
banner