Andre Gomes, miðjumaður Everton, mun fara í aðgerð á morgun en Portúgalinn ökklabrotnaði gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Gomes var færður beint á sjúkrahús af Goodison Park, þar sem leikurinn fór fram. Gomes lenti illa eftir að Heung-min Son hafði brotið á honum. Gomes lenti á Serge Aurier með slæmum afleiðingum.
Gomes var færður beint á sjúkrahús af Goodison Park, þar sem leikurinn fór fram. Gomes lenti illa eftir að Heung-min Son hafði brotið á honum. Gomes lenti á Serge Aurier með slæmum afleiðingum.
Nú hefur verið staðfest að hann sé með brotinn ökkla. „Everton getur staðfest að Andre Gomes muni fara í aðgerð á morgun (mánudag) eftir að hafa orðið fyrir meiðslum á ökkla gegn Tottenham í leik liðanna í dag."
„Eftir að hafa gengist undir prófanir þá var staðfest að um beinbrot í ökkla væri að ræða," segir í tilkynningu frá Everton.
Athugasemdir