Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. nóvember 2019 12:20
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmenn Levante skoðuðu Ter Stegen fyrir leikinn
Mynd: Getty Images
Levante kom á óvart og lagði Barcelona að velli í gær, með þremur mörkum gegn einu. Lionel Messi kom Barca yfir í fyrri hálfleik en Jose Campana og félagar í Levante skoruðu þrjú mörk á innan við tíu mínútum í síðari hálfleik.

Campana skoraði eitt markanna og sagði hann eftir leikinn að hann og liðsfélagarnir hafi skoðað myndbönd af Marc-Andre ter Stegen, markverði Barca, fyrir leikinn.

„Ég vissi nákvæmlega hvert ég átti að skjóta þegar boltinn kom til mín. Við horfðum á myndbönd af honum í margar klukkustundir," sagði Campana eftir leikinn.

Ter Stegen er víða talinn sem einn af bestu markvörðum heims. Barcelona er áfram á toppi spænsku deildarinnar þrátt fyrir tapið.
Athugasemdir
banner
banner
banner