Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 03. nóvember 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar kærður af lækni
Mynd: Getty Images
Brasilískir fjömiðlar fylgjast náið með lífi stórstjörnunnar Neymar og greindu frá því í síðustu viku að Herbert Kramer, læknir sem hjálpaði við fæðingu sonar Neymar, sé búinn að kæra leikmanninn.

Kramer var ráðinn til að aðstoða við fæðingu Davi Lucca Da Silva Santos árið 2011, þegar Neymar var aðeins 19 ára gamall.

Kramer segist enn ekki hafa fengið rétta greiðslu frá Neymar og Carol Dantas, móður barnsins, og ákvað þess vegna að kæra.

Dómari er búinn að hlýða á málið og úrskurðaði hann lækninum í hag. Ekki fann hann þó út hversu há greiðslan ætti að vera og eru lögfræðingar mannanna að takast á um hvaða upphæð sé hæfileg.
Athugasemdir
banner
banner
banner