Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. nóvember 2019 17:14
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Osasuna og Valladolid dreymir um Evrópu
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænska boltanum. Stærsti leikur dagsins fór fram í Villarreal þar sem Athletic kíkti í heimsókn alla leið frá Bilbao.

Jafnræði ríkti með liðunum í mjög taktískum leik og að lokum tókst engum að koma knettinum í netið, þó heimamenn hafi fengið betri færi.

Liðin stefna bæði á Evrópusæti í ár og hafa farið þokkalega af stað. Villarreal er með 18 stig eftir 12 umferðir, einu stigi meira en Bilbao.

Villarreal 0 - 0 Athletic Bilbao

Nýliðar Osasuna eru þá komnir upp að hlið Villarreal eftir mjög góðan sigur gegn Alaves í dag. Nýliðarnir gjörsamlega skelltu spútnik liði síðasta árs og unnu 4-2 í afar fjörugum leik þar sem dæmdar voru þrjár vítaspyrnur.

Alaves er aðeins með 12 stig eftir 12 umferðir, sex stigum minna en Osasuna.

Osasuna 4 - 2 Alaves
1-0 Ruben Garcia ('20)
2-0 Chimy Avila ('26)
2-1 Victor Laguardia ('27)
3-1 Roberto Torres ('45, víti)
3-2 Lucas Perez ('51, víti)
4-2 Juan Villar ('55, víti)

Real Valladolid er þá einu stigi á eftir Osasuna eftir 3-0 sigur á nýliðum Mallorca.

Jafnræði ríkti með liðunum en heimamenn nýttu færin sín betur enda með meiri gæði í framlínunni.

Real Valladolid 3 - 0 Mallorca
1-0 Joaquin Fernandez ('40)
2-0 Enes Unal ('50, víti)
3-0 Sandro Ramirez ('94)

Þess má geta að staðan í spænsku deildinni er ótrúlega jöfn og eins og staðan er núna þá skilja aðeins fimm stig topplið Barcelona að frá Valencia sem situr í 12. sæti.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 32 25 6 1 70 22 +48 81
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 32 13 12 7 46 34 +12 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner
banner